Blablabla

Það er ekkert merkilegt búið að gerast hér, ég fór bara til ömmu og afa um verslunarmannahelgina og borðaði og borðaði. Núna er ég ekki búin að borða Nóa nammi í meira en viku! Já og ég keypti mér geðveikan kjól í Warehouse sem er svona 50's snið og með tjulli neðst og er með fíngerðum hvítum og svörtum skáröndum!
Hætti örugglega í vinnunni 18. ágúst, ég er að drepa sálina mína á þessu skítapleisi!
Hlakka geggjað til að skólinn byrji aftur, bókalistinn kom í dag og ég get ekki beðið!
Reyndar sýndist mér íslenskan ætla að verða gífurlega leiðinleg og þýskan erfið... en þetta reddast! Allavega betra en Nói Siríus!

Bæjó!
09. ágúst 2006 klukkan 06:42
Bryndis Ósk Ţ. Ingvarsdóttir
Sunna skrifar ...
Hae hae, ég get loksins lesid bloggid titt :)
12. ágúst 2006 klukkan 00:16

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing