BÍLL! A CAR! EIN AUTO! EN BIL!

Nú hefur það loksins gerst dömur mínar og herrar! Ég hef eignast bíl!Og það þýðir fyrir mér að ég er formlega orðin fullorðin í einu og öllu! Og það þýðir að ég hef borgað og á SJÁLF 100% bílnum og enginn getur ráðið neitt yfir honum!

Þetta er stórglæsilegur dökkblár Hyundai Accent, árgerð 1998, keyrður 121 km og hann kostaði ekki nema litlar 150 þúsund!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég varð veik á miðvikudaginn og var heima þá og í dag en á þriðjudaginn borgaði ég s.s 50 þús í bílnum og kláraði að kaupa hann í dag þegar ég fékk útborgað!
Ég er búin að vera smá lasin og var skikkuð til að vera heima en í gær og dag en ég  varð bara að keyra yndislega nýja fallega frábæra bílinn minn útum allt í dag þó ég hafi ekki mætt í skólann! En á morgun tek ég ég ekki ógeðslega viðurstyggilega gula skrípið í skólann!

Ég ætla að reyna að setja mynd af elskunni minni eða sambærilegum bíl  inná síðuna, en hún heitir Bryndreki eða Brynka!

Eigið góðar stundir!
Brynka
01. september 2006 klukkan 04:50
Bryndis Ósk Þ. Ingvarsdóttir
Sunna skrifar ...
Til hamingju elsku krútt, endielga sendu mér mynd ~´i e-mail á suntor@verslo.is
02. september 2006 klukkan 06:24
gamlakonan skrifar ...
þarna komst upp um þig það er altof dökkur grunur á þessu hjá þér gamlar konur eins og ég sjáum þetta ekki, gangi þér vel. gamla konan hinumeiginn við veggin
08. september 2006 klukkan 16:27
Helena skrifar ...
til hamingju! :D
14. september 2006 klukkan 15:00
Antonia skrifar ...
Hæ fröken! rakst á síðuna þína, skondið nokk, og bara já! til hamingju með the automobile! En var ekki planið að þú ætlaðir að láta importera fyrir þig litla bjöllu frá Þýskalandi?:Þ
En flott síða annars! huuugs
28. september 2006 klukkan 01:01

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing